Sími
517-3800
Fax 587-9985
Email enso@enso.is
Upphaf silkiprentunar.
Rekja má upphaf
silkiprentunar austur til Kína, en þessi prentaðferð var þekkt þar
fyrir meira en 2000 árum.
Kínverjar notuðu mannahár, sem strekkt var á tréramma ásamt
laufblöðum, sem klippt voru útog þannig var búin til prentmynd,
Mannshár reyndist nógu sterkt og langt þannig að þessi
búnaður var nothæfur.
Prentaðferð þessi var mest notuð til fjölföldunar mynda trúarlegs eðlis
og til skreytinga.
Þeking þessi barst síðan til Japan. Hófst þá notkun nets, sem ofið
var úr silki en stensillinn var gerður úr límefnum.Myndform var
skorið úr dýrahúð, olíubornum pappír eða málmþynni, allt eftir því
hvað var við hendina.
Stífur bursti var þá notaður til að þrýsta litarefni gegn um opna
fleti í neti.
Ekki er með vissu vitað
hvar og hvenær silkiprentun hófst á vesurlöndum.
Árið 1907 var takmarkað einkaleyfi veitt Samuel nokkrum
Simon, sem bjó í Manchestger á Englandi.
Hann notaði silkinet til að sigta hveiti til brauðgerðar, en
hann kom auga á nýja moguleika, en það var að nota silkinet til
prentunar og fékk hann takmarkað einkaleyfi fyrir uppgötvun sinni.
Nokkru seinna eftir
aldamótin 1900 uppgötvaðist prentskvísan og varð brátt og er enn
aðal verkfærið við silkiprentun.
Hófst þá prentun allskonar auglýsingaskilta á karton pappa og
en stensillinn var gerður úr einhverskonar pappírsþynnu.
Árið 1928 kom á markað frábært efni til
stensilgerðar
sem unnið var úr málningarefnum.
Prentgæði jukust þá umtalsvert.
Ekki liggur ljóst fyrir
hver fyrstur fann upp ljósnæma stensilinn, í likingu við þann sem
við þekkjum í dag.
Skömmu fyrir 1915 voru þrír ungir prentarar á vesturströnd
Bandaríkjanna að gera tilraunir með að búa til stensil, sem gerður
var úr límefni og gelatíni
(matarlím). Hann
var gerður ljósnæmur annað hvort
með potassium sodium eða ammonium bichromate, sem eru þekkt
efni í ljósmyndagerð.
Efni þetta ver borið í netið og þurrkað í myrkri.
Síðan var fyrirmynd logð ogan á netið og myndað með
einhverskonar ljósgjafa.
Netið var síðan skolað í v olgu vatni þar til óhertir hlutar myndar
leystust upp.
Eftir seinnii
heimstyrjöldina, 1945 kom nælonið á markað.
Var þá fljótlega farið að vefa fínt net, sem þótti heppilegra
og ódýrara en silki.
Síðan hafa komið fram prentnet úr betri efnum svo sem polyester og
stáli, til sérstakra nota.
Í dag eru nokkrar aðferðir
til að gera stensil til silkiprentunar, má þar nefna filmur í
leysiprentara, ljós- næmar capillary filmur og ljósnæman stensil.
Umhverfisvæn polyvinyl alcohol og polyvinyl acetate eru nú
uppistaðan í stenslinum, sem gerður er ljósnæmur með diazo
íblöndunarefni.
Silkiprentun á stóran þátt
í umhverfi okkar. Alls
konar auglýsingaefni og áletranir utan sem innan dyra eru
silkiprentuð. Á
skrifstofnunni eru eru öll lyklaborð silkiprentuð.
Í eldhús og baðskáp eru allar krukkur og krúsir prentuð með
púðaprentun. Í
bílnum okkar eru auðeknni á stjórntækjum og í mælaborði einnig
silkiprentuð. Meira að
segja leir og postulíns flísar í baðherberginu okkar eru
silkiprentaðar, áður en þær eru brenndar Mynstur í fataefni og
gardínum eru að jafnaði skreytt með silkiprentun.
Ekki má gleyma allskonar útivistarfatnaði
og íþróttavörum sem að öllu jöfnu eru annað hvort silki eða
púðaprentuð. Prentmöguleikar í silkiprentun eru nánast óteljandi.
Silkiprentunn fyrir byrjendur og lengra komna.
Allmennt
Kennsla
pdf skjal.
Stensill notkunnarleiðbeiningar
pdf skjal
Blæðing litar í silkiprentunn
pdf skjal.
Hvernig prenta skal flutningsprentun
pdf skjal
Prentlitir til silkiprentunar
Frá Sericol
Polydyne YD grafískur prentlitur. pdf skjal
Polyplast PY grafískur prentlitur
pdf skjal
Polyscreen PS iðnaðar prentlitur
pdf skjal
Texiscreen Aqua AJ vefnaðarlitur
pdf skjal
Texopaque
Classic OP vefnaðarlitur
pdf skjal
Nylobag NB vefnaðarlitur.pdf skjal
.
Nylotex NX vefnaðarlitur.pdf.skjal
Tæki til silkiprentunar
Vastex - prentvélar, þurktæki og
fleira
Silki
Sköfur og fl.
Forrit til að reikna út
blöndunarhlutfall á sericol litum til að fá út ákveðin pantone lit
FORRITIÐ ER ÓKEYPIS FYRIR VIÐSKIPTAVINI ENSO
Forritið má sækja hér..