Sími  517-3800
Fax  587-9985
Email enso@enso.is

Um Enso

Umboðs- og heildverslunin Enso ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu og innflutningi á rekstrarvörum og tækjum fyrir prentiðnaðinn. Starfsmenn Enso hafa áralanga reynslu og viðamikla þekkingu á þessu sviði. Reynsla okkar á þessum markaði gerir okkur kleyft að veita viðskiptavinum okkar bestu fáanlegu þjónustu sem völ er á. Meðal þess sem við höfum þjónustað og selt er eftirfarandi; prentvélar, plöstunarvélar, prent-hugbúnaður, hráefni til prentunar svo sem pappír og ýmiskonar filmur, prentlitur og frágangs vörur.

Nýlega höfum við bætt við lausnum hvað varðar klæðningar á veggi og loft (kerfisloft). Einnig höfum við boðið uppá lausnir með loftunum í ljósa búnaði, díóður frá GE og Halogen lausnir frá Clipso og Xenon frá Vijlit.
 
 

Innflutningur

Enso ehf. vinnur með og flytur inn vörur frá fyrirtækjum víðs vegar um heiminn, flest þessara fyrirtækja eru leiðandi fyrirtæki í sínum geira, þar má nefna sem dæmi Avery, GE, Obeikan, Politape, Ible, Neschen, Mutoh, Staedtler, 3M, Vutek, Clipso og mörg fleiri.
 

Stefna hvað varðar vöru og þjónustu

  • Stefna Enso ehf er að selja vandaða vöru, þetta er yfirleitt ekki ódýrasta varan en samt sem áður bestu kaupin.Vörurnar eru frá viðurkenndum framleiðendum sem eru leiðandi á sínu sviði.
  • Við kappkostum að þjónusta vélar sem við seljum með því að vera sanngjarnir í verðlagningu og vera fljótir að bregðast við ef eitthvað bilar. Einnig höldum við reglulega námskeið fyrir viðskiptavini okkar.

Við yfirförum og uppfærum reglulega vélar sem við höfum selt.

Þetta heldur vélunum í toppstandi, kemur í veg fyrir að vélar úreldist, ný forrit og viðbætur virka því alltaf vel með uppfærðum vélum.